Í janúarhefti W magazine hefur fyrirsætum verið stillt upp í vor-sumarlínu 2010 af tískusýningum frá hinum ýmsu hönnuðum meðal annars: Marc Jacobs, Christopher Kane og fleiri….
Ferskt og einfalt… snilldarlega gerð myndasería af uppröðuðum og dressuðum fataskáp. Sumt er betra en annað og allt í nærmynd: skórnir, töskurnar og kjólarnir -bara fyrir okkur stelpurnar.
Hár Luigi Murenu og John Frieda
förðun Lucia Pieroni
Stílisti Alex White
Ljósmyndari by Craig McDean
myndir fengnar að láni frá: W magazine
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.