Langar þig að vera með gátt að þinni vefverslun á Pjatt.is og ná til fjölda kvenna?
Um daginn kölluðum við Pjattrófur eftir ábendingum um verslanir á Facebook eða annarsstaðar á netinu.
Okkur bárust ótal ábendingar um allskonar verslanir og þjónustu sem konur eru að selja í gegnum netið og nú langar okkur að bjóða þessum framtakssömu snillingum að auðvelda lesendum Pjatt.is að versla við ykkur.
Vikulega lesa um 20.000 konur vefinn okkar og margar hefðu eflaust gaman af því að geta nálgast skemmtilegan varning sem þú hefur í sölu í gegnum síðuna okkar.
Við viljum gera “regnhlíf” fyrir þessar verslanir hér á Pjatt.is og búa til augljósan og greiðan aðgang að ykkar verslun í gegnum síðuna okkar gegn vægu gjaldi.
Ef þú hefur áhuga máttu endilega senda okkur póst á pjattrofurnar (hja) pjatt.is og við svörum þér um hæl og sendum þér einfaldar leiðbeiningar.
Mjög fljótlega mun svo litla verslunarmiðstöðin líta dagsins ljós hér á síðunni.
Hlökkum til að heyra frá þér!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.