Emily Blunt er gift Office leikaranum John Krasinksi og hún segir að það hafi breytt lífi sínu að hafa kynnst honum.
Jason styður Emily í einu og öllu og hún segir að þegar hún finni fyrir þeim stuðning þá finnist henni hún vera óstöðvandi og geti allt. Hún segir að það sé dásamlegt að hafa einhvern sem styður þig bæði á slæmu og góðu dögunum.
Emily vill einnig fara að ögra sjálfri sér í leiklistinni og er tilbúin að takast á við meira krassandi hlutverk en ekki leika alltaf þennan týpíska karakter sem er steyptur í fast mót. Leikkonan segist einnig elska að ferðast um heiminn og leiklistin hefur svo sannarlega gert henni kleift að gera það þar sem margar kvikmyndir eru teknar upp fyrir utan Bandaríkin.
Jason og Emily tala alltaf fallega hvort um annað í fjölmiðlum og segja vinir þeirra að þau séu sálufélagar og passi saman eins og flís við rass! Þau eruð að minsta kosti voða sæt með góðan smekk á strigaskóm.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig