Fyrirsætan og leikkonan Elsa Pataky er gift Chris Hemsworth og eiga þau eitt barn saman.
Elsa segir að þegar maður eigi svona ungt barn þá gangi það fyrir þegar kemur að því að velja kvikmyndahlutverk.
Ferillinn hjá Chris gengur fyrir núna þar sem tilboðin streyma inn hjá honum og hann hefur slegið í gegn í hlutverki sínu sem Thor. Elsa segir í stað þess að taka hvaða hlutverk sem er hugsi hún sig betur um og velji þau hlutverk sem hana virkilega langi til þess að leika.
Elsa er svakalegur kroppur, það er ekki hægt að segja annað, en að hennar mati er bak kvenna kynþokkafyllsti líkamsparturinn.
Henni finnst fátt fallegra en að sjá konu í kjól sem er ber í bakinu sem sýni línur hennar vel. Fólk líti þó án efa líka á rassinn í leiðinni en þetta vinnur allt saman að sögn Elsu og fallegt bak er bara hluti af heildinni og fáist með mikilli vinnu í ræktinni og hollu mataræði.
Elsa leikur í nýjustu kvikmyndinni af Fast and the Furious og heimtaði að fá að leika öll áhættuatriðin sjálf enda frekar mikið adrenalínfrík og henni finnst fátt skemmtilegra en að fá að skemmta sér á tökustað og gera allt sjálf.
Þessi flotta kona elskar að eyða tíma með dóttur sinni India Rose og eiginmanninum Chris og eyða þau fjölskyldan sem mestum tíma saman þegar foreldrarnir eru ekki í vinnunni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig