Breska söngkonan Ellie Goulding hefur átt hvern hittarann á fætur öðrum í sumar. Hún skilur hinsvegar ekkert í því hvers vegna hún kemst ekki inn á lista sem mæla kynþokka hjá ýmsum karlatímaritum.
Ellie lét hafa það eftir sér í viðtali að þegar karlatímaritið FHM gaf út listann yfir kynþokkafyllsta fólk ársins þá hafi hún orðið fyrir nokkrum vonbrigðum með að ná ekki inn á listann, það sé ákveðið markmið hjá henni að komast inn á slíkan lista eða vera álitin kynþokkafull að mati annara.
Henni er svo sem alveg sama í hvaða sæti hún er á þessum listum og myndi alveg þiggja að vera númer hundrað af hundrað manna lista-hún væri allavega í topp 100!
Söngkonan hefur haldið sér í formi gegnum tíðina með því að hlaupa. Hún segir að þegar hún var átján ára gömul þá hafi hún vaknað einn daginn, ákveðið það að hlaup væri eitthvað fyrir hana og síðan hefur hún hlaupið eins og vindurinn, með honum, á móti honum og allt þar á milli. Tók bara Forrest Gump á þetta.
Hlaupin eru þó ekki aðeins ætluð til þess að halda henni í formi, heldur segir Ellie að hún sé nokkuð viss um það að eitthvað hræðilegt muni gerast einhvern daginn í heiminum sem verði til þess að hún þurfi að hlaupa eins og enginn sé morgundagurinn, þá er sko betra að vera undirbúinn og í formi!
Ellie stefnir á að hlaupa sitt fyrsta maraþon á næsta ári, það er að segja ef að heimurinn verður enn til staðar. Hversu mikil alvara er í þessum orðum hjá stúlkunni veit ég ekki en ég hló að minnsta kosti nokkrum sinnum þegar ég las þetta viðtal, það er nauðsynlegt að hafa húmor fyrir sjálfum sér.
P.S. ef þú hleypur eins og Ellie gerir þá mæli ég með þessu lagi með henni á hlaupalagalistann, það kemur þér í gírinn.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=CGyEd0aKWZE[/youtube]Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig