Samkvæmt heimildum ætla Ellen DeGeneres og Portia de Rossi að endurnýja hjúskaparheitin og eru jafnvel farnar að tala um að ættleiða barn.
Tímaritið OK! greinir frá því að stelpurnar ætli að gera eitthvað skemmtilegt í kringum 16. ágúst næstkomandi í heimalandi De Rossi, Ástralíu, en þá eiga þær sex ára brúðkaupsafmæli.
DeGeneres og De Rossi ætla að taka þessi skref vegna þess að hjónabandið hefur ekki gengið sem skyldi undanfarið og vilja þær sýna fólki að erfiðleikarnir hafi gert þær sterkari en áður með því að endurnýja hjúskaparheitin.
„Þetta verður einhverskonar önnur brúðkaupsferð, einföld athöfn fyrir framan örfáa gesti,“ sagði heimildarmaður.
„Ekkert hefur verið ákveðið en Ellen og Portia hafa einnig talað um það að ættleiða.“
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.