Elite fyrirsætukeppnin var haldin á sunnudagskvöld fyrir fullu húsi gesta á Grand Hotel. Átta glæsilegar stúlkur kepptu um titilinn, hver annarri flottari.
Það var hin gullfallega Anna Jia sem bar sigur úr býtum. Anna er hreint út sagt geislandi fögur og það er mat dómnefndarinnar að hún eigi framtíðina fyrir sér í fyrirsætuheiminum.
Anna Jia tekur þátt í alheimskeppninni sem fram fer í Kína í byrjun næsta mánaðar – hún verður flottur fulltrúi Íslands.
Það var rosalega flott tískusýning á keppninni – og allar stelpurnar klæddust fallegum uppháum sokkum frá DIM í París. Sokkarnir heita DIM-UP og fást hjá Lyfju.
Guðrún Gunnarsdóttir er menntuð í viðskiptafræði en hefur lengst af starfað í tískubransanum. Nú rekur hún heildsölu ásamt eiginmanni sínum. Hún er sérlegur unnandi Parísarborgar en þangað fer hún nokkrum sinnum á hverju ári. Guðrún er hrútur, fædd 1976.