Fyrirsætan og ljósmyndarinn Elísabet Davíðsdóttir tekur sig vel út í hinu súpersvala Please Magazine þar sem hún pósar á þakinu heima hjá sér í Williamsburg í Brooklyn.
Á tveimur myndanna klæðist hún íslenskri hönnun Báru Hólmgeirsdóttur hjá Aftur en sú verslun er á annari hæð fyrir ofan Fjallkonubakaríið á Laugavegi.
Myndirnar tók Olivia da Costa og stílistar eru Adele Samani og Olivia da Costa. Kíktu á meira frá Please Magazine HÉR.

Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.