Cougar er orð notað yfir eldri konur sem næla sér í yngri menn og þetta orð sést sí og æ á slúðurblöðum. Margar myndaseríur hafa einnig birst í tískublöðum sem sýnir eldri konur með yngri folum.
Mér finnst fyndið að það verði svona mikið umstang þegar eldri konur næla sér í yngri menn á meðan það er talið fullkomlega eðlilegt að eldri menn ná sér í yngri konur. Það er líka forvitnilegt að enginn kvartar yfir því að verið sé að hlutgera karlmenn með þessum myndaseríum.
Hver getur verið hissa á því að skutlur eins og Demi Moore, Julianne Moore og Madonna nái sér í yngri menn, þær eru yfirnáttúrulega flottar miðað við aldur og margir menn á öllum aldri sem myndu vilja vera með þeim.
Fólk ætti frekar að setja spurningamerki við sambönd ungra kvenna við eldri menn sem oft eru bæði ljótir og feitir og hafa ekkert eftirsóknarvert annað en peninga?
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.