Þessi litli pjakkur heitir Stevo Poulin hann er aðeins 8 ára gamall og kallar ekki allt ömmu sína en hann byrjaði að stunda glímu þegar hann var enn í leikskóla.
Já – það eru sko engin kettlingatök hjá honum. Hann er með töff móhíkana klippingu og enn flottari rútínu í glímunni og Stevo litli er með keppnisskapið á hreinu enda sigrar hann hvert mótið á eftir öðru – flottur strákur.
Hér er stórskemmtileg samantekt af honum á hinum ýmsu glímumótum og það sést vel þegar hann Stevo tekur andstæðingana og snarneglir þá í gólfið.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=oQnsQSRVZno[/youtube]
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.