Fyrirsætur sem mæta of seint á tískusýningar, föt sem eru ekki fullkláruð, slæm umfjöllun frá tímaritum og heimspressunni…Það er ekki auðvelt að vera fatahönnuður á tískuviku hvar sem er í heiminum.
Hvernig takast þeir á við álagið og stressið?
Hér svara stóru nöfnin í tískuheiminum hvernig þau takast á við stressið fyrir sýningar: Karl Lagerfeld, Marc Jacobs, Stella McCartney, Donatella Versace ofl…
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.