NIVEA fyrirtækið var nýlega að markaðssetja húðmjólk sem ætlað er að stinna þurra húð.
Þessi húðmjólk “Firming Body Milk” inniheldur Q10 efni sem eiga að auka teygjanleika og stinna húðina. Efnið vinnur þannig að það styrkir uppbyggingu húðarinnar og hjálpar til við frumuendurnýjun. Líklegast eitthvað sem margar konur sækjast eftir. Svo er líka bara gaman að gefa sjálfum sér tíma til daglegs dekurs.
Oft þarf ekki flóknar aðgerðir til að stinna húðina og fríska upp svo sjáanlegt verði. Í mínu tilfelli finnst mér frábært að nota húðmjólk og nudda henni vel inn í húðina. Þessi frá NIVEA er góð þar sem hún þornar fljótt og vel og smitast ekkert í fötin.
Ferskleiki og unglegt yfirbragð er einkenni Nivea. Þessar vörur lykta líka alltaf svo vel, húðmjólkin er þar engin undantekning og auðvitað vill maður nota vellyktandi sem oftast. Það vekur upp góðar tilfinningar í kroppnum.
Guðrún Gunnarsdóttir er menntuð í viðskiptafræði en hefur lengst af starfað í tískubransanum. Nú rekur hún heildsölu ásamt eiginmanni sínum. Hún er sérlegur unnandi Parísarborgar en þangað fer hún nokkrum sinnum á hverju ári. Guðrún er hrútur, fædd 1976.