Við sem erum með sítt hár vitum hvað það er ótrúlega gott að kunna að skella í sig eins og einni flottri greiðslu án mikillar fyrirhafnar.
Ég fór í stuttan könnunarleiðangur um netið og fann hérna fimm flottar greiðslur sem verða allar heitar í haust og vetur.
Þú getur gert ótrúlega smart hliðartagl í 60’s fílíng, flottan fléttuhnút eða rúllu… Fylgdu bara leiðbeiningunum og gerðu þitt besta.
Útkoman verður ‘casual’, sexý og flott…
Flestar hárvörurnar sem notaðar voru í greiðslurnar, t.d. Redken, ættu að vera fáanlegar á íslandi en sambærilegar hárvörur eru einnig fáanlegar frá TIGI.
Hér er farið baksviðs og fylgst með förðun og greiðslu fyrir sýningu Sophie Theallet
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.