Hún Guðný var með færslu um 10 best klæddu konurnar að mati tískubloggarans Tommy Ton. Ein af konunum sem hann nefndi var Michelle Harper en sú mæta kona keypti einmitt kjól af Eygló um daginn.
Michelle er áberandi í tískusenunni í New York og hefur vakið mikla athygli fyrir frumlegan klæðnað og sérstakan stíl. Þeir sem hana hafa hitt bera hana líka góða sögu og segja hana sjarmerandi, gáfaða, hlýlega í viðmóti og uppörvandi.
Það skyldi því ekki undra að Victor da Souza hafi gert hana að “músu” sinni og mæta þau saman á alla flottustu tískuviðburði í New York.
Eygló hefur lengi verið einn af mínum uppáhalds hönnuðum og var ég svaka glöð að heyra að smekkkonan Michelle Harper hafi verslað af henni kjól, og það einmitt eins kjól og ég á 😉
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.