Ég var í sundi núna fyrir ekki svo löngu og komst ekki hjá því að stara ekki þegar þegar ung stelpa spókaði sig um á bakkanum í þessum sundbol frá Black Milk.
Maður kemst bara ekki hjá því að pæla aðeins í beinagrindinni sjálfri og hvort þetta sé allt á réttum stað!
Mér leið eins og ég hefði röntgen augu í smá ..sem var snilld haha! Um leið og ég sá þennan sundbol fattaði ég strax hvaðan hann kom enda er þetta merki frægt fyrir svona frumlega hönnun!
Þetta er mjög fyndinn og flottur sundbolur og svo eru margir brjálæðislega skemmtilegir hérna ásamt fullt af fleiri snilldar fötum!
Viktoría Hinriksdóttir er yngsta pjattrófan. Fædd í ljónsmerkinu árið 1994. Hefur áhuga á öllu sem tengist hreyfingu og íþróttum, mataræði, tísku og öðru sem gerir lífið fallegra, betra og skemmtilegra.