‘The instinct of a man is to pursue everything that flies from him, and to fly from all that pursue him’
– Voltaire
Sem segir okkur hvað dömur mínar? Jú… ‘Play hard to get!’
Sumar stelpur/konur segjast þreyttar á ‘leikjum’ og vilja bara samskipti sem byggjast ekki á því sem þær kalla leiki. En er lífið samt ekki nánast eitt stórt leikrit þegar betur er að gáð?
Samskipti fólks, og þá sérstaklega kynjanna, virðast ganga best ef allir spila eftir settum leikreglum. Þetta eru ekki reglur sem voru skrifaðar af einhverjum embættismönnum og konum heldur hefðir sem hafa þróast með okkur og mótast af reynslunni.
Af einhverjum ástæðum var körlum kennt að ‘auðveldar’ konur væru ekki til að eltast við.
Það er -reynslan hefur kennt bæði konum og körlum að ákveðnar aðferðir duga betur en aðrar ef karlar og konur eiga að ná saman.
Af einhverjum ástæðum var körlum kennt að ‘auðveldar’ konur væru ekki til að eltast við. Þeir vilja endilega finna að þeir séu að keppa að einhverju þegar þeir eru að falast eftir samskiptum við þig. Í raun er þetta bæði flókin og einfaldur kokteill í senn og í hvert sinn sem einhverjum tekst að koma þessum kúnstum vel í orð þá verður uppi fótur og fit.
Skemmst er að minnast bókarinnar “He’s just not that into you” sem opnaði augu ótal kvenna í afneitun um allan heim.
Sumar höldum við að karlmenn séu bæði flóknir og óskiljanlegir og notum ómældan tíma og drekkum endalausa kaffibolla og hvítvínsglös meðan við reynum að hjálpa hver annari að skilja og útskýra þessar einföldu skepnur.
En mundu bara þetta: Eðli karlmannsins er þannig að hann flýr frá því sem eltir hann og eltir það sem flýr frá honum.
Þessvegna skaltu aldrei vera of reiðubúin á fyrstu stigum sambands og allra síst átt þú að hefja eltingarleikinn. Þá er líklegt að hann bregðist við sínu sanna karlmannlega eðli með því að flýja af hólmi ástar þinnar.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.