Ég er ein af þeim sem elska að ferðast og þá sérstaklega til New York. Tel jafnvel að hlutirnir gerist einungis í Bandaríkjunum eða jafnvel bara í New York borg?
Kannski er það ein af ástæðunum að borgin er svo skemmtileg og það má klárlega sjá í þessu myndbandi. Þú veist aldrei hvað getur gerst!
Ég taldi í fyrstu að fólkið sem skipulagði brúðkaupsveisluna þekkti brúðhjónin -en svo var nú ekki. Nýgifta parið var valið af handahófi þegar þau stigu nýgift út frá borgardómara -skemmtilegt.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.