Sumarið er tíminn!
Tíminn til að gleðjast og koma saman við sem flest tilefni. Tilefnin verða ekki að vera stór, til dæmis er bara tilefni í sjálfu sér að bjóða upp á kokteil. Hóa saman nokkrum skemmtilegum vinkonum og bjóða upp á dásamlega sumarlega, ferska og freyðandi Mimósu.
Mímósa er tilvalin sumarkokteill sem hægt er að bera fram bæði með brunch eða við önnur tilefni en í einn drykk þarftu…
- 6 matskeiðar af ferskum appelsínusafa
- 2 matskeiðar af ferskum sítrónusafa
- 2 matskeiðar af appelsínulíkjör, t.d. Grand Mariner
- Kælt Prosecco freyðivín
- Fersk myntulauf
Aðferð
Blandaðu saman í kampavínsglasi; appelsínusafa, sítrónusafa og líkjör. Fylltu með Prosecco. Skreyttu með mintulaufi og berðu fram.
Skál!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.