Leikkonan Drew Barrymore gengur nú með sitt annað barn.
Drew og eiginmaður hennar Will Kopelman eru alsæl með viðbótina en fyrir eiga þau eina dóttur, Olive.
Drew hefur aldrei farið leynt með það að henni langi til að eignast fleiri börn en dóttir hennar Olive er aðeins þrettán mánaða gömul. Drew, sem er sjálf einkabarn, hefur sagt að hún og Will vilji eignast mörg börn og keyra um í Strumpastrætó eða Minivan.
Sögusagnir fóru á kreik um að leikkonan væri ólétt þegar hún mætti á LACMA Art+FIlm Gala á laugardaginn en þá var hún klædd í víðan kjól sem sýndi ekki línurnar og huldi magasvæðið. Leikkonan var engu að síður glæsileg eins og alltaf.
Í síðasta mánuði kom Drew fram í spjallþætti Jay Leno og talaði þar um að hana langaði í annað barn og helst mjög fljótlega.
Drew sem áður hefur glímt við marga djöfla lítur betur út en nokkru sinni fyrr og er augljóst að fjölskyldulífið gerir hana afar hamingjusama – flott kona í alla staði!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig