Leikkonan Drew Barrymore er svo sannarlega yfir sig ástfangin af eiginmanni sínum Will Kopelman. Svo ástfangin að hún ætlar að láta fjarlægja öll sex húðflúr sín og skipta um trú fyrir hann.
Will er gyðingur og ætlar Drew að taka trú hans og til þess að geta látið jarðað sig að gyðingasið þarf hún að láta fjarlægja öll húðflúrin sín en Drew er með sex húðflúr samtals sem hún lét á sig á villingaárum sínum.
Drew elskar það að vera mamma og húsmóðir, henni finnst fátt skemmtilegra en að eyða tíma með litlu fjölskyldunni sinni og hefur algjörlega umbreyst á stuttum tíma og er farin að líta á lífið og tilveruna sem það dásamlegasta sem til er.
Drew þráir heitast að vera húsmóðir í Santa Barbara en í þeim bæ klæðist fólk íhaldssömum fatnaði og tekur lífinu nokkuð hátíðlega. Náinn vinur leikkonunnar segir að húðflúr passi ekki vel inn í menningu snobblífins þar.
Þessi sami vinur hennar segir einnig að Drew sé að þroskast og hún hafi orðið meira íhaldssöm með aldrinum og partýár hennar séu að baki.
Það er gott að fólk geti leyft sér að breytast í lífinu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig