Valentino: I know what they want -they want to be Beautiful
Nú er von á ógeðslega spennandi mynd sem sýnir á frábæran hátt hvað það er sem raunverulega gerist bakvið tjöldin í heimi hátískunnar. Myndavélin fylgir tískurisanum Valentino og fylgdarliði hans og sýnir vel dramatíkina, dívurnar, fíluköst og tárin sem renna þarna óspart hjá fullorðnum karlmönnum! Tær snilld!
Myndin heitir The Last Emperor og ég ætla rétt að vona að hún verði sýnd hér sem allra fyrst.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.