Það kemur mér ekkert á óvart að Penzim baseraðar vörur frá Dr. Jóni Braga hafa nú hlotið verðlaun sem bestu “hrukkubanarnir” úti í hinum stóra heimi enda var ég ekki að ýkja þegar ég skrifaði Penzim Facelift ábendinguna hér fyrir neðan. Þetta hefur MJÖG sýnileg áhrif eftir eitt skipti!
Það iljaði mér líka um hjartarætur að sjá frá honum athugasemd hér á síðunni þar sem hann benti mér á erlenda heimasíðu sína http://www.drbragi.com
Hann Jón Bragi veit það kannski ekki, en amma mín og mamma hans voru æsku og ævi-vinkonur og ég fékk stundum að heyra af því sem hann var að stússast. Til dæmis, þegar ég var svona tíu ára að mig minnir, var mér sagt að hann Jón Bragi sonur Rósu væri bara alveg hættur að borða sykur: “Hann segir að sykur sé bölvað eitur,” sagði amma og dró augað í pung.
Semsagt. Heldur langt á undan sinni samtíð og veit sannarlega hvað hann er að gera. Jón Bragi er svalur.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.