Bobby Brown, fyrrum eiginmaður Whitney Houston og faðir Bobbi Kristinu Brown, hefur beðið fjölmiðla að sýna fjölskyldunni nærgæti og skilning.
Dóttir þeirra Whitney heitinnar fannst meðvitundarlaus í baðkari síðasta laugardag en það var eiginmaður hennar sem kom að henni.
Skemmst er að minnast þess að söngkonan ástsæla, Whitney Houston, fannst látin í baðkari fyrir rétt tæpum þremur árum, eða í febrúar 2012.
Bobbi Kristina hefur glímt við mikið þunglyndi eftir fráfall móður sinnar. Hún er jafnframt mjög sólgin í athygli og hefur mikla þráhyggju fyrir móður sinni og dauða hennar.
Myndin hér til hliðar er tekin af þeim mæðgum árið 2011.
Whitney Houston glímdi lengi við mikla eiturlyfjafíkn og alkóhólisma en talið er að það hafi orðið henni að aldurtila. Hún var 48 ára þegar hún dó.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.