Þrátt fyrir að vera orðin 67 ára gömul hefur Dolly Parton engu gleymt og er enn að skemmta aðdáendum!
Dolly bauð gesti og gangandi velkomna í skemmtigarðinn sinn Dollywood um síðastliðna helgi klædd í lífvarðabúning. Hún var að sjálfsögðu með hárið vel túberað, rauðu löngu neglurnar og mikið máluð.
Dolly segir að sem sveitastelpa hafi hana alltaf dreymt um að verða meiri glamúr pía. Hún fann það fljótlega að sveitin var ekki hennar stíll og ákvað að gella sig meira upp, hún segir einnig að hún hafi ekki fengið að sjá kvikmyndir eða skoða glanstímarit og hafi því þurft að fá innblástur frá “bæjargærunni” sem var klædd mjög ögrandi og mikið máluð.
Þannig varð hin eina og sanna Dolly Parton til!
Dolly fannst bæjargæran eins og kvikmyndastjarna, klædd í stutt pils, mikið máluð, með aflitað hár og eldrauðar neglur- ekkert ólík Frú Parton. Kántrísöngkonan kná segir einnig að hún sé ekki falleg af náttúrunnar hendi, hún hafi alltaf viljað vera fallegri en hún er og það sé ein af ástæðum þess að hún máli sig svona mikið.
Söngkonan tók einnig lagið í Dollyworld en Dolly hefur sko engu gleymt þegar kemur að því að skemmta fólki.
Svo má ekki gleyma ofurstóru brjóstunum og öllum hinum lýtaaðgerðunum sem Dolly Parton hefur farið í til að halda í “æskuljómann” en um þetta hefur hún sagt ógleymanlega setning: “It costs a lot of money to look this cheap”. Með húmorinn í lagi.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig