Annie Leibovitz er alveg hreint magnaður ljósmyndari sem hefur líklega myndað flestar ef ekki allr helstu stjörnur heims.
Hún byrjaði sem ljósmyndari hjá Rolling Stone tímaritinu og hefur alla tíð verið þekkt fyrir persónulegar mynddir hennar af stjörnunum í Bandaríkjunum. Á seinustu árum hefur hún verið í samstarfi með Disney þar sem kvikmynda- og tónlistastjörnur eru settar í hlutverk Disney-stjarna á gullfallegum og ævintýralegum myndum.
Seinasti skammturinn var opinberaður í janúar á þessu ári en gaman er að líta yfir hvernig myndirnar hafa verið í gegnum árin:
Tinna hefur brennandi áhuga á næstum öllu en þó líklega mest á sjónvarpi og kvikmyndum, án þess þó að hafa nokkurt faglegt vit á hvorugu.
Hún er nemandi í mannfræði og starfar með náminu sem samfélagsmiðlaráðgjafi. Hún elskar allt sem kemur eldamennsku og bakstri við, og þá mest af öllu að baka íslenskar pönnukökur og að poppa örbylgjupopp. Markmið Tinnu í lífinu er að vera góð, láta gott af sér leiða og skemmta sér frábærlega á meðan.