Samkvæmt tískublaðinu Vanity fair er leikkonan og fyrrverandi fyrirsætan Diane Kruger best klædda Hollywood stjarnan.
Diane hefur heillað tísku-spekúlanta Hollywood með vel heppnuðum “átfittum” röð eftir röð og hún nær alltaf að slá í gegn á rauða dreglinum.
Diane hefur kvenlegan og klassískan stíl. Hún er orðin uppáhalds stórstjarna margra hönnuða. T.d Karl Lagerfeld og Roberto Cavalli.
Smelltu á myndirnar til að skoða þessa flottu leikkonu og fötin hennar:
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.