Leikkonan Diane Kruger er í viðtali í nýjasta Marie Claire. Þar segir hún frá sambandi sínu, leiklistarfelinum og kjaftshögginu sem kom eftir þrítugt.
Að eigin sögn fannst Diane hún hafa áorkað helling í Hollywood á sínum yngri árum en þegar hún varð þrítug fékk hún svo sannarlega blauta tusku í andlitið sem var eiginlega eins og kjaftshögg því þá fékk hún smá “raunveruleikamóment” og áttaði sig á því að hún vissi ekki rassgat í bala um eitt eða neitt!
Hún talar þó þrjú tungumál og hefur ferðast um allan heiminn en hún segir samt sem áður að líf hennar hafi ekki byrjað fyrr en eftir þrítugt.
Diane hin fagra er í kringum frægt fólk nánast alla daga. Þegar þú ert kvikmyndastjarna þá vilja frægir hönnuðir að þú klæðist hönnun þeirra og Diane segir að það sé hið besta mál þar sem að tískan fái fólk til að dreyma og vera skapandi. Tíska og föt geti gert konur fallegri og við eigum að nýta það sem við höfum til þess að líða vel -hvaðan sem það nú kemur.
Diane er í sambandi með leikaranum Joshua Jackson sem flestir kannast við úr Dawson´s Creek þáttunum. Hú segir að sér finnist öll sambönd erfið, sama hvaðan þú kemur eða hvort þú ert fræg eður ei: “Sambönd snúast um skuldbindingu og þetta er líka allt spurning um tímasetningu.”
Diane segir þegar að einhver birtist í lífi þínu sem er “hinn eini rétti” þá þarftu að gera upp við þig hvort að þú sért virkilega tilbúin til þess að skuldbindast viðkomandi aðila og hafa hann númer eitt tvö og þrjú í öllu sem þú gerir.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig