Á hverjum morgni í desember kl 7:20 heilsum við lesendum okkar með litlum örhugvekjum um lífið og tilveruna. Samskipti við annað fólk og okkur sjálf. Molar sem taka innan við mínútu að lesa en skilja mikið eftir sig. Byrjaðu í dag að elska… og lesa jóladagatal Pjatt.is. Settu þér svo smátt og smátt markmið um betra hugarfar á nýja árinu sem er nú handan við hornið.
Byrjaðu að næra mikilvægustu samböndin í lífi þínu. Komdu fram við mikilvægasta fólkið eins og kóngafólk.
Þú munt upplifa sanna og einlæga gleði og ánægju um leið og þú byrjar að segja fólkinu sem þú elskar hvað þér þykir vænt um þau og hvað þau skipta þig miklu máli. Þú getur ekki verið öllum allt, en þú getur skipt nokkrar manneskjur öllu máli.
Finndu út hvaða fólk skiptir þig mestu máli í lífinu og komdu fram við það eins og kóngafólk. Mundu að þú þarft ekki svo og svo marga vini, heldur aðeins vini sem þú getur treyst og stólað á að eru og verða það alltaf.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.