Leikkonan Demi Moore er ennþá í sárum eftir skilnaðinn og það sem henni finnst verst er hversu fljótur hann var að fara í fangið á Milu Kunis.
Demi hefur verið mikið úti á lífinu undanförnu og látið sem ekkert sé en nánir vinir hennar segja að hún sé ennþá að syrgja það að hjónaband hennar og Ashton sé lokið, þau voru gift í sex ár og var Demi afar hamingjusöm með honum.
Demi er að reyna að gera allt sem hún getur til þess að gleyma honum en hún er einfaldlega ennþá yfir sig ástfangin og virðist ekki finna neitt annað sem kemur í staðinn fyrir það sem hún hefur glatað.
Til þess að bæta gráu ofan á svart þá eru dætur hennar ennþá mjög ósáttar við partýstand Demi og hafa lítið eða ekkert samband við hana.
Demi hefur reynt að tala við þær en allt kemur fyrir ekkert og dömurnar loka stanslaust á hana. Dætur hennar eru sannfærðar um það að Demi sé að reyna að halda í við allar ungu dömurnar í glysborginni með djammi og grönnu útliti sínu.
Demi hefur þó sætt sig við það að hlutirnir eru eins og þeir eru núna hjá henni og dætrum hennar og er alltaf að bíða og vona að hinn eini rétti birtist aftur.
Hún heldur því fram að ef hún finni sér annan mann sem á eftir að elska hana eins og hún er þá muni hún gleyma Ashton fyrir fullt og allt.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig