Leikkonan Demi Moore var svo flott á apríl forsíðu tímaritsins Harper’s Bazaars að hið breska Elle fékk líka Demi til að sitja fyrir…
Og ekki veit ég frá hvaða plánetu hún er ættuð en Demi (42) virðist yngjast með hverju árinu sem líður. Hún er gift hinum unga fola Ashton Kutcher (27) en það er spurning hvort maður fari ekki að hennar fordæmi og yngi upp? Mér virðist það hafa góð áhrif á hina flottu Demi. Hún lítur út fyrir að vera sirka 15 ára á forsíðu Harper’s Bazaar en myndirnar eru ferskar og flottar og klæðist Demi því heitasta af tískupöllunum fyiri vorið-og sumarið 2010.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.