Leikkonan Demi Moore er nú loks búin að senda inn sína eigin skilnaðarpappíra en Ashton sendi sína pappíra frá sér fyrir um þremur mánuðum síðan.
Demi segist loksins vera tilbúin að horfa fram á við og taka því sem koma skal en það er þó einn hængur á því skilnaðurinn gæti farið fyrir rétt þar sem að þau eru alls ekki sammála um skiptin eftir sex ára hjónaband þeirra.
Ashton þénaði töluvert meira en Demi þegar þau voru gift en margir vilja meina að hann hafi orðið enn frægari eftir að hann giftist henni.
Hann er þó ekki til í að gefa neitt eftir og heldur fast um pyngjuna sína, honum finnst hann ekki skulda Demi neitt.
Ef lögmenn þeirra beggja geta ekki komið á samkomulagi þeirra á milli gæti þetta orðið löng og ströng skilnaðarbarátta en skilnaðir í glysborginni eru oftar en ekki ljótir og erfiðir þar sem miklir peningar spila stórt hlutverk hjá fræga fólkinu.
Þessi skilnaður er að verða með þeim frægari en mikill aldursmunur var á parinu og vandræðin urðu fyrst þegar hann hélt framhjá henni með stelpu í einhverju partýi.
Mjög fljótlega eftir skilnaðinn byrjaði hann svo með Milu Kunis og Demi átti um sárt að binda. Þurfti að fara í meðferð og fleira þar sem henni leið mjög illa og fór illa með sig.
Nú er að vona að þetta gangi vel hjá þeim enda bæði glæsilegt fólk sem hefur látið margt gott af sér leiða.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig