Demi Moore og Ashton Kutcher eru ekki ennþá skilin og skilnaðardeilan er farin að snúast eingöngu um peninga.
Demi heimtar heilmikið fé frá Ashton til þess að endurinnrétta heimilið sitt en Ashton segir nei nei við þessu öllu saman. Hann segir að Demi eigi nóg af peningum þar sem að hún hafi nýlega fengið dágóða summu frá Bruce Willis fyrrverandi eiginmanni sínum.
Ashton vill að þessari deilu ljúki von bráðar til þess að hann geti notið þess að vera með kærustunni sinni Milu Kunis án frekari truflunar en Demi virðist vera gera allt til þess að tefja málið.
Peningar og aftur peningar, frekar leiðinlegt þegar svona mál enda á þennan veg en þau skildu opinberlega en ekki löglega fyrir einu og hálfu ári síðan og í kjölfarið fylgdi mikið niðurbrot hjá Demi greyinu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig