Hún Demi okkar Moore hefur áttað sig á því að yngra er ekki alltaf nauðsynlega betra og að sama fjölskyldan hentar oft bara ágætlega!
Fyrr á árinu var Demi að deita ungan pilt að nafni Harry Morton, þau voru saman í nokkra mánuði þangað til að Demi fékk leið á honum og fór þá að deita annan ungan pilt frá Ástralíu en fékk líka nóg af honum eftir smátíma og fór að leita á önnur mið.
Núna er Demi hinsvegar búin að átta sig á því að þessir eldri eru kannski alveg ágætir og nýjast meðlimur á deit lista leikkonunnar er Peter Morton (66) pabbi Harry- vandræðalegt?!
Peter á svo mikla peninga að hann veit varla aura sinna tal. Þau eru búin að vera að rugla saman reitum í einhvern tíma og Peter hefur meira að segja hitt dætur Demi. Peter þarf hinsvegar ekki að kynna Demi fyrir Harry syni sínum, hún ætti að þekkja hann nokkuð vel.
Ætli að Demi sé byrjuð að “fullorðnast” og komin í heldri manna klúbbinn sem kærasta eða ætli að hann sé bara nokkra mánaða leikfélagi? Það er aldrei að vita upp á hverju daman tekur næst, ég bíð spennt!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig