Við vinkonurnar fórum út um síðustu helgi á skemmtistaðinn Austur. Á barnum þar sem ég var að panta mér rauðvín sé ég allt í einu þennan myndarlega mann. Hann sá mig líka og við fórum að spjalla, það kom á daginn að manni átti þrjú myndarleg börn og eina barnsmóður.
Barnapabbi var reyndar í fylgd með annarri dömu (sú leit út eins og Ungfrú Ísland, vúpp!!) en maðurinn losaði sig við dísina til að tala við mig. Mér fannst það dálítið skondið, sérstaklega þar sem ég hefði líklega fengið skammarverðlaunin í þessari sömu keppni.
Við töluðum aðeins saman á barnum og hann spurði hvort hann mætti bjóða mér út að borða. Það var auðsótt mál, mér fannst hann voðalega sætur og svo annað:
Það hefur lengi verið hálfgerð fantasía hjá mér að vera boðið út að borða, fá mér alltof mikið rauðvín og enda svo kvöldið heima hjá myndarlegu deiti þar sem við rífum og tætum fötin hvort af öðru.
Barnapabbi sótti mig klukkan átta næsta kvöld og við tókum stefnuna á Þrjá Frakka. Það er alltaf svo mikið stuð að fara á deit og ég hlakkaði þvílíkt til, þó það væri líka í mér kvíðatilfinning vegna umræðuefna… Ég ákvað því bara á deitinu sjálfu að leyfa manninum að tala sem mest.
Það virkaði held ég ágætlega, hann sagði mér hinar skemmtilegustu sögur og ég var dugleg að hella í glasið hans. Sullaði líka einhverju smáræði ofan í mig. Við enduðum svo kvöldið á Kaffibarnum.
Þarna inni var stappað af fólki, góð tónlist og ég verð að segja að á þessum tímapunkti var takmarkið nærri í höfn:
Hann var búinn að bjóða mér út að borða, hann hafði hellt mig fulla… bara mig langaði allt í einu ekkert í kynlíf með barnapabba. Ohhh… bömmer en hann var bara ekki mín týpa. Örugglega mjög leiðinlegt fyrir hann, þar sem ég virtist tilkippileg fyrst ég þáði boðið.
Þegar hann keyrði mig heim í leigubíl og fékk EKKI að koma inn hreytti hann líka í mig:
“Þú ert lesbía!”
Ég var dálítið sár, karlmenn ohh af hverju láta þeir svona… -en missti svo bara stjórn á mér þarna í ölæðinu og lét hann heyra það. Ég hellti mér yfir hann og það var alls ekki smart af mér en hann horfði á mig á meðan eins og ég væri eitthvert frík!
Að því búnu hljóp ég inn til mín grátandi.
Mig langar í kjölfarið til að lýsa eftir mönnum sem vilja hitta konu amk í tvær vikur og kynnast henni áður en þeir vaða upp á hana.
Og svo langar Bellu að spyrja:
[poll id=”13″]
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.