Lady Gaga er núna á milljón eins og alltaf að vinna í því að fylgja eftir smáskífunni “Born this Way”.
Hún verður utan á I-D en myndirnar eru teknar af Mariano Vivanco og hún í Thierry Mugler fötum en einn úr stílistahernum hennar, Nicola Formichetti, er aðalhönnður hjá Mugler tískuhúsinu.
Línan í ár er, eins og flestir hafa séð, mikið latex og er þessi blái jakki latex og svo kreppugrænar buxur við þessa hæla-lausu hæla sem hún hefur verið í núna heillengi svona miðað við hana og hvað hún skiptir hratt um look!
Hún er voða mikið í því að vera með þessi special fx meik öpp á sér með þessi horn á kinnunum og öxlunum.
Myndbandinu hennar fyrir “Born this way” er leikstýrt af tískuljósmyndaranum og leikstjóranum Nick Knight en hann hefur meðal annars gert nokkur video fyrir Björk Guðmundsdóttur – einna helst má nefna mitt uppáhalds “Pagan Poetry” og svo unnu þau saman minningarvideo til heiðurs Alexanders McQeen.
Lady Gaga…
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=wV1FrqwZyKw [/youtube]Pagan Poetry…
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=M1Wwbw2gCcA [/youtube]Alexander McQueen minningarmyndband
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=DGfHqu5U5lU [/youtube]Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.