Sönglúðinn Chris Brown sem lúbarði söngdívuna Rhiönnu í köku fyrir tveimur árum vill nú ólmur sanna að hann sé nú svona kominn yfir þetta leiðindaatvik sem hann”lenti í” – að lemja kærustuna sína í buff á leigða Lamborgininum sínum.
Óheppilegt þegar það gerist – en hann er búin að vera koveraður í lúser-dösti síðan og fáir þora að koma nálægt honum og vinna með honum. Á dögunum kom út kvikmynd sem heitir Takers og þar var passað upp á að hafa hann ekki í trailernum til að fæla ekki bíófólk frá en hann var líka að gefa út nýja plötu og aflitaði á sér hárið svona til að flikka upp á lúkkið af því tilefni…
Chris Brown byrjaði nottlega að skíta upp á bak þegar hann nefndi plötuna sína F.A.M.E eða Forgive all my enemies! Kappinn mætti eldhress í morgunþáttinn Good Morning America (GMA) í morgun og hann vildi ekki ræða atvikið sem hann “lenti í ” fyrir 2 árum síðan.
Þá hefði kannski verið lag að kalla plötuna eitthvað annað en blaðamenn munu að sjálfsögðu og eðlilega spyrja hvað hann ætti í fjandanum við með titlinum !!!
Breezy brást svona hrikalega illa við að hann reyndi að skipta um umræðuefni en þáttastjórnandinn innti hann eftir svörum sem svo endaði með því að þegar þau voru búin með viðtalið þá tók hann stól úr búningsherberginu sínu og henti honum í gluggann sem vísaði út á 43.ja stræti í New York þar sem aðdáendur og vegfarendur urðu fyrir glerbrotum!
Hann rústaði herberginu svo aðeins meira og labbaði út í fússi og urraði á starfsmann þáttarins og starði hann niður, reif sig úr bolunum og hljóp út á götu!!
Way to be dude… um að gera að sýna fram á að þú sért breyttur og nýr maður með ofbeldisfullu kasti í einum frægasta morgunsjónvarpsþætti í USA!!!
Þessi gæi á nottlega bara að snúa sér að einhverju öðru en músík… kannski bara fara í anger management og svo kannski vinna með fórnalömbum ofbeldis og svo kannski bara vera meiri maður og velja að tala um þetta í stað þess að fara undan í flæmingi endalaust… nota þetta sér til uppdráttar en með þessu er hann bara, að mínu mati, að skorast undan því að taka ábyrgð á þessu, því hann hefur ekki sagt “sorry maður ég kúkaði á mig”. Hann hefur bara dansað í kringum þau orð en aldrei aldrei sagt þetta beint út! Kúkur!
Og svona til að flikka upp á minnið hjá ykkur þá lúbarði hann Rihönnu eins og harðfisk… og þetta var ekki neitt slap in the face. Hann sprengdi báðar varirnar á henni og reif – hún fékk glóðarauga og hann beit hana í eyrað og í fingurna… já í fingurna!!
Segi eins og Jay Leno þegar þetta kom fyrir og líklega það fyndnasta sem hann hefur sagt í 10 ár: Núna vitum við að ekki bara lemur Chris Brown stelpur heldur slæst hann eins og stelpa líka!
Viðtalið er hérna og sjá má hann tryllast að innan þegar Robin heldur áfram að spyrja hann.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.