Það er eins gott að David Bowie (67) er orðin gamall og þroskaður því annars væri hann eflaust með stressuðustu mönnum Evrópu eftir að ný bók datt í hillurnar í bókabúðum vestanhafs og austan.
Í bókinni, sem heitir Bowie: The Biography’, segir m.a. fyrirsætan og partýpinninn Vicki Hodge frá því sem gekk á hér í gamla daga en hún var tíður gestur á heimili Bowie og fyrrum eiginkonu hans Angie, en þau voru gift frá 1970-80.
Vicki þessi greinir frá því í bókinni að hjónin hafi verið dugleg að halda orgíur heima hjá sér þar sem vel völdum aðilum var boðið að lyfta sér á kreik. Meðal annars hafi Mick Jagger verið tíður gestur á heimili þeirra í Chelsesa hverfinu í London.
“Þau breyttu stofunni hjá sér. Lögðu feldi og ábreiður um allt og kölluðu þetta The Pit en þar gátu gestir skemmt sér með því að taka þátt í fjölbreyttum erótískum athöfnum.”
Vicki segir að Mick Jagger hafi meðal annars sofið hjá Angie Bowie, beint fyrir framan popparann sem lét sér fátt um finnast enda mun hann vera mjög opin kynferðislega og fyrir löngu komin út úr skápnum sem tvíkynhneigður.
Fyrrum aðstoðarmaður Bowie staðfestir þetta og segir að kynlíf hafi aldrei verið neitt stórmál fyrir goðsögninni og fyrrum konu hans: “Þetta var bara svona eins og að takast í hendur í lok kvöldsins. Fyrir honum snerist kynlíf bara um aðdáun.”
Eftir skilnaðinn við Angie giftist Bowie fyrirsætunni Iman en þau eiga saman dótturina Lexi.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.