Tískuvikan í New York stendur nú yfir og að sjálfsögðu er Victoria Beckham á meðal þeirra sem sýnir komandi fatalínu sína.
Það var þó ekki Victoria sjálf eða hönnun hennar sem stal senunni (fötin eru samt sem áður æðisleg) heldur mætti öll fjölskyldan til að styðja hana. David var þarna ásamt sonum þeirra og litlu tískudrottningunni Harper Seven.
Harper fannst þetta nú ekkert ýkja merkilegt og boraði bara í nefið þegar henni leiddist. Beckham fór hinsvegar á kostum og tók “selfie” myndir í gríð og erg af sér og börnunum. Harper var í fanginu á pabba sínum á meðan drengirnir sátu við hlið hans ásamt Önnu Wintour ritstjóra Vogue og allra augu beindust að þessum laglega hópi.
Þessi fjölskylda sprengir allan krúttskalann, það finnst mér að minnsta kosti!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig