David Beckham er alsæll með þá ákvörðun um að hafa hætt í knattspyrnu og hefur ákveðið að einbeita sér meira að fjölskyldunni.
Fjölskyldan hefur dvalist í Los Angeles undanfarin mánuð en Victoria er nýfarin aftur til London til að sinna vinnunni sinni aðeins betur meðan David var eftir í Bandaríkjunum með börnin.
David skrapp á hafnaboltaleik með litlu dömuna sína Harper Seven og voru bræður hennar þeir Brooklyn, Romeo og Cruz einnig með í för.
Harper litla hafði lítinn sem engan áhuga á þessum blessaða leik meðan bræður hennar fylgdust spenntir með, David hafði fullt í fangi með skemmta Harper á meðan á leiknum stóð en litla daman ákvað að gefa pabba sínum smá sælgæti og vildi helst bara vera í fanginu á David og knúsa pabba sinn.
Það er skemmtilegt að sjá hvað David er aktívur í pabbahlutverkinu og honum líkar það greinilega ekki illa að eiga frítíma með þeim. Krúttlegt.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig