Ó já! David Beckham er mættur aftur fyrir H&M á nærfötunum einum fata. Tattúin fá að njóta sín í botn og kroppurinn, já fagri kroppurinn líka.
Þrátt fyrir að vera hættur í knattspyrnu virðist David ekkert vera farinn að hægja á sér og heldur ótrauður áfram að hanna fatnað í samvinnu við H&M.
David sækir innblástur til fólksins á götunni, hann elskar að fylgjast með fólki og sjá hvernig það klæðir sig. Sjálfur segist hann elska góðar gallabuxur sem passa vel og venjulegan bol við. David á að eigin sögn ansi mikið af bolum og góðum gallabuxum. Það er hversdagsklæðnaðurinn hans en hann segist einnig eiga nokkur góð jakkaföt fyrir betri samkomur.
Ég er ekki frá því að herra Beckham verði bara flottari með aldrinum og segi bara haltu áfram að vera sexý og sætur!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig