David Beckham setti mynd af brosandi eiginkonu sinni, Victoriu Beckham, á netið þar sem hún brosir alveg hriginn.
Myndina setti hann á Facebook fan síðuna sína, sem hann heldur nokkuð vel í gangi, en þar hlær sú dökkhærða voðalega fallega svo að skín í tennurnar, aldrei þessu vant. Hún hefur jú verið gagnrýnd fyrir að stökkva varla bros.
David sem á með henni fjögur börn skrifaði einfaldlega “Ég sagði ykkur þetta, hún brosir” við myndina.
Myndin stefnir nú í 400.000 like á innan við 12 klukkutímum en það jafngildir því víst að ÖLL íslenska þjóðin væri búin að smella á Like takkann.
Mögulega er hún í svona góðu skapi eftir að hafa skroppið til Beijing í Kína til að knúsa bóndann en hann skrapp þangað til að sinna formlegum erindum.
Sjálf hefur Victoria gengist við þessu brosleysi á myndum en gerir um leið grín að því og segir að tískubransinn hafi gert hana svona alvarlega.
“Ég brosti alltaf á myndum hér áður fyrr. Ég held ég hafi hætt því þegar ég fór í tískubransann. Ætli tískan hafi ekki bara stolið brosinu frá mér.”
“Ég bjó bara til persónu, og ég er ekki að segja að þetta sé ekki ég, en ég myndi aldrei halda því fram að ég væri algjörlega þessi manneskja sem brosir aldrei. Ætli þetta sé ekki bara ákveðin tegund af vörn,” sagði frúin í einhverju viðtalinu.
Okkur á Pjatt.is finnst að hún mætti alveg brosa svolítið meira… enda getur brosið í dimmu dagsljós breytt 🙂
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.