David Beckham hefur í nægu að snúast þessa dagana en hann flakkar á milli Bretlands og Frakklands þar sem hann spilar fótbolta með knattspyrnuliðinu PSG.
David reynir að eyða eins miklum tíma og hann mögulega getur með börnunum sínum þegar hann er á Bretlandi en þessar myndir voru teknar þegar hann og Harper Seven voru á röltinu í Lundúnum og virtust skemmta sér vel saman.
Svo virðist sem David hafi klætt Harper upp þennan daginn en hún skartaði töffaralegum jakka frá Stellu McCartney og skóm frá Marc Jacobs.
Harper sem er tuttugu mánaða gömul er farin að njóta þess að labba út um allt og David átti fullt í fangi með að hlaupa á eftir Harper sem skemmti sér konunglega með pabba sínum.
Í viðtali sem var tekið nýlega við Victoriu sagðu hún að Harper yrði líklega “strákastelpa” þar sem hún á þrjá eldri bræður en henni finnst fátt skemmtilegra en að leika sér og fíflast með eldri bræðrum sínum.
Victoria og börnin hafa verið dugleg að heimsækja David til Frakklands og sjá leiki með honum en í nýlegu viðtali sagði Victoria að þau væru mjög aktív í uppeldi barnanna sinna.
Þau eru þó hugsanlega með barnfóstur, kokka og annað fylgdarlið til þess að hjálpa sér þó það sé ekki nema annað slagið.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig