Ég er með gríðarlega ljósa húð og er einnig ljóshærð og þess vegna finnst mér stundum afskaplega erfitt að finna flottan varalit sem hentar mér-sem er nota bene á viðráðanlegu verði.
Fyrir jólin langaði mig að vera gella og fór því á stúfana og rakst á dásamlegan lit frá danska merkinu GOSH.
Hann er númer 145 og heitir Shocking Coral, rauð/bleik tónaður og fer einstaklega vel við ljósa húð og ljóst hár, annars held ég að hann fari öllum vel hann er svo æðislegur á litinn. Liturinn þekur vel og helst einnig vel á og ef þú hefur notað GOSH snyrtivörur áður þá verður þú ekki svikin því vörurnar frá þeim eru frábærar og flest allar á viðráðanlegu verði.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig