Hér er góður fyrirboði fyrir árið 2014 en hann kemur sem LIKE tröll á okkar eina sanna landi elds og ísa.
Þessi frábæri vinur okkar býr í um hálftíma spotta frá Höfn, stutt frá fjallinu Horni og fjörunni Kirkjusandi.
Myndina tók gömul vinkona mín, Lára Martin, en hún rekur hugleiðslusetur yfir vetrartímann á Höfn og fer auðvitað með alla hugleiðarana og vini sína í gönguferð upp að honum LÆK:
“Það lyftir ávallt og gleður hjartað að ná góðu sambandi við landið okkar, sem talar til okkar í margvíslegum myndum,” segir Lára og auðvitað erum við algjörlega sammála því. Ikke?
Frábær mynd tekin á okkar frábæra landi sem við elskum öll alltaf þrátt fyrir stormasama sambúð á köflum. Tökum honum Trölla hérna sem hreinu tákni um að árið 2014 sem senn gengur í garð verði frábært!
LIKE?
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.