Daphne Guinness er kona sem mér finnst alltaf gaman að skoða myndir af. Hún er með alveg afskaplega spes fatasmekk, einhverskonar blanda af Jackie O og Lady Gaga ef það meikar eitthvað sens?
Hún er alltaf fáguð en samt svo furðuleg og lítur líka ótrúlega vel út miðað við aldur. Hún er 43 en lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en 30 ára!
Hún getur svo sannarlega veitt innblástur ef manni langar að vera svolítið öðruvísi.
Daphne á það reyndar til að stíga feilspor í fatavali en það gera allir einhverntíman. Langoftast er hún bara ótrúúúlega flott!
Smelltu til að skoða myndir af Daphne…
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.