Ilmvötnin frá Marc Jacobs eru í algjöru uppáhaldi hjá mér!
Flöskurnar eru svo skemmtilega hannaðar, frísklegar, frumlegar og bara sjúklega flottar! Sóma sér vel á hvaða snyrtiborði sem er.
DAISY SUNSHINE EDITION sem kom út nú fyrir stuttu er mjög léttur og sumarlegur og hentar mjög vel á þessum árstíma sem nú nálgast okkur öll og gleður og kætir.
Ilmefnin eru blanda af blómum og ávöxtum. Liljur og fjólur á móti mandarínum, guava og rifsberjum.
Það er smá keimur af ljósum við og musk ilm sem gerir ilminn alveg einstaklega ávanabindandi. Ég meina það, þvílíkt góður ilmur!
Klárlega einn af þeim bestu ilmum fyrir sumarið, eins og raun allir ilmirnir frá Marc Jacobs.
Það er líka skemmtilegt að safna þessum ilmvötnum því hvert og eitt glas er sérstakt í útliti. Mjög falleg og góð ilmvatnshönnun enda hefur Marc Jacobs fengið ófá verðlaun fyrir flottu ilmvötnin sín. Bæði fyrir ilmina sjálfa og hönnun umbúðanna sem eru alltaf svo flottar.
Daisy sunshine er ilmur sem stendur undir nafni, sumarlegur og ilmar af brakandi ferskleika!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.