Breska tískudrottningin og fyrirsætan Daisy Lowe er dóttir tónlistarmannsins Gavin Rossdal sem er giftur Gwen Stefani en móðir Daisy heitir Pearl Lowe, þekkt söngkona og textilhönnuður í Bretlandi.
Gavin og Pearl voru vinir bæði gift, en eftir rifrildi við mann sinn fór Pearl á fund við Gavin þar sem þau áttu eina ástarnótt saman og Daisy var getin.
Daisy var alin upp af móður sinni og eiginmanni hennar sem Daisy taldi vera föður sinn. Gavin hafði þó ætið grun um að hún væri dóttir hans og þegar hún var orðin unglingur fór Gavin fram á faðernispróf og fékkst þá staðfesting þess að hann væri faðir stelpunnar.
Daisy er stútfull af sjálfstrausti. Fékk rokkarablóð og -tískuna í vöggugjöf. Í dag er hún að gera góða hluti sem fyrirsæta og -fatahönnuður en hér er stúlkan í myndatöku fyrir breska tímarit Esquire og myndirnar hafa vakið heilmikla athygli.
Þetta sjúklega heita videó hefur líka vakið mikla eftirtekt -undirfötin eru sexý og Daisy Lowe kann svo sannarlega að hreyfa sig.
Hreyfingar hennar minna helst á Jennifer Beals í Flashdance:
Daisy Lowe for UK esquire HD from Greg Williams on Vimeo.
ljósmyndir: Greg Williams, fyrir Esquire.
Hér er Daisy Lowe heima hjá sér og sýnir hluti sem henni þykir vænt um:
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.