…því hans bíður þessi gullfallega stúlka þegar hann kemur tilbaka frá Íslandi…
Hún heitir Irina Shayk, er rússnesk og segir sagan að hún hafi alist upp í rússnesku þorpi sem var svo lítið að tískutímarit voru ekki einu sinni seld þar.
Hún má þakka mömmu sinni fyrir hvar hún er stödd í dag því mamma hennar sá auglýsingu á stoppistöð (í stærra þorpi) þar sem auglýst var eftir fyrirsætum.
Mamman sendi inn umsókn fyrir dóttur sína, Irina datt í lukkupottinn og i dag ferðast stúlkan um allan heim, er kærasta Ronaldo og starfar sem fyrirsæta.
Myndir fyrir GQ teknar af: Dusan Reljin
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.