Þau Courtney Stodden og Dough Hutchinson komust á forsíður slúðurmiðlanna þegar þau giftu sig þann 20 maí árið 2011.
Ástæðan var sú að þá var Doug 51 árs en eiginkonan 16 ára! Þau kynntust þegar hún kom til hans á leiklistarnámskeið en fljótlega fóru þau að vera saman. Hún var þriðja eiginkona Dougs.
Í október í fyrra sótti hún svo um skilnað eftir að þau höfðu verið gift í tvö og hálft ár en nú hefur hún víst áttað sig á því að hann er hinn eini rétti fyrir hana.
Móðir hennar og umboðsmaður, Krista Keller, kom fram í viðtali við US Magazine en þar greindi hún frá því að Doug hafi átt erfitt við skilnaðinn. Courntey hafi hinsvegar þurft að rasa út og fá að vera 19 ára í smá tíma.
Hún hafi hinsvegar komist að því á tæpu ári, og eftir að hafa prófað fleiri menn, að Doug var alveg málið fyrir hana:
“Það er bara núna nýlega sem þau gerðu sér alveg ljóst að þau vilja vera saman. Hún þurfti bara að prófa að vera ein í smá tíma og fá að gera það sem 19 ára stelpur vilja gera.”
“Skilnaðurinn var löglegur og hún fór fljótlega að prófa að hitta aðra menn. Þá gat hún auðvitað borið hann saman við aðra og niðurstaðan varð sú að hann er hinn eini rétti fyrir hana,” sagði Krista og dásamaði Doug jafnframt fyrir hversu vel hann höndlaði skilnaðinn.
“Hann var svo yfirvegaður. Sagði bara ‘ég ætla að vera eins og maður hérna, ætla að höndla þetta eins og maður og leyfa henni að kanna af hverju hún er að missa.”
Parið bíður nú spennt eftir því að endurnýja hjúskaparheitin en Krista, sem þurfti á sínum tíma að skrifa undir undanþágu svo að dóttir hennar fengi að giftast Doug, grínaðist með að stelpan þurfi ekki undirskrift móður sinnar í þetta sinn.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.