Friends drottningin Courteney Cox og tónlistarmaðurinn Johnny McDaid eru búin að trúlofa sig.
Leikkonan tilkynnti sjálf tíðindin á Twitter rétt fyrir helgi þar sem hún sagði einfaldlega: „Við erum búin að trúlofa okkur.“
McDaid setti einnig á Twitter stuttu síðar: „Við erum búin að trúlofa okkur.“
Cox og McDaid eru búin að vera saman á síðasta ári og fór orðrómur af stað í apríl síðastliðnum að þau væru búin að trúlofa sig.
Fyrrum eiginmaður Cox, David Arquette, lýsti McDaid sem frábærum gaur fyrr á þessu ári.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.